Ægir H. Ferdinandsson fæddist 5. júlí 1934. Hann lést 27. september 2024.

Útför hans fór fram 15. október 2024.

Elsku pabbi minn.

Nú ertu farinn til mömmu í sumarlandið og þar er ég viss um að hafa orðið fagnaðarfundir þegar þið hittust á ný. Það léttir á sársaukanum að vita að þið séuð saman á ný, en það er samt skrýtið og sárt að þú sért farinn. Þegar ég kom heim, föstudaginn þegar þú fórst, settist ég niður í sófann, kveikti á kerti við mynd af ykkur mömmu, hellti mér í smá vínglas, grét svolítið og hlustaði á tónlistina sem þið óluð mig upp við; Veru Lynn, Bing Crosby, Mills Brothers og fleiri. Þessi stund færði mig beint heim í Undraland þar sem ég átti yndisleg æskuár í öruggum faðmi ykkar mömmu.

Þú varst besti pabbinn, alltaf til staðar fyrir mig, og ég

...