Mikael Egill Ellertsson skoraði í gær sitt fyrsta mark í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu en hann er aðeins fimmti Íslendingurinn sem nær að skora í þeirri deild. Hann skoraði þá fyrra mark Venezia sem gerði jafntefli, 2:2, við Monza á útivelli og spilaði allan leikinn. Venezia er nýliði í deildinni og er næstneðst.