Vonarstræti Norðurlandaráðsþing er haldið í Ráðhúsinu og Smiðjunni.
Vonarstræti Norðurlandaráðsþing er haldið í Ráðhúsinu og Smiðjunni. — Morgunblaðið/Karítas

Forseti lýðveldisins, Halla Tómasdóttir, tekur á móti Volodimír Selenskí Úkraínuforseta á Bessastöðum í dag kl. 8.30 og munu forsetarnir ræða þar ýmis mál í samskiptum ríkjanna. Þá er áætlað að Selenskí hitti einnig fulltrúa Alþingis.

Selenskí mun einnig sækja þing Norðurlandaráðs, sem verður sett kl. 14.15, og munu þeir Birgir Ármannsson forseti Alþingis og Einar Þorsteinsson borgarstjóri flytja þar setningarávörp. Þingfundurinn stendur til kl. 17, og verða þar m.a. samþykkt þingsköp og dagskrá fundarins.

Forsætisráðherrar Norðurlandanna funda einnig í dag og er efni fundarins hvernig unnt sé að tryggja sem best frið og öryggi á norðurslóðum og Norðurlöndum, sem og hvaða skref þurfi að taka til að efla norrænt samstarf á sviði viðbúnaðar í viðlögum og varnar- og öryggismála. Þá munu ráðherrarnir ræða hvernig Norðurlöndin geti

...