Gatnakerfi Næg eru verkefnin en meira fjármagn þarf til.
Gatnakerfi Næg eru verkefnin en meira fjármagn þarf til. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Ökumenn þekkja flestir að götur höfuðborgarinnar geta verið erfiðar yfirferðar og þá sérstaklega í rigningu vegna rása í veginum.

Morgunblaðið hafði samband við Vegagerðina sem ber ábyrgð á stofnæðum borgarinnar. Samkvæmt upplýsingum þaðan staðfestir Vegagerðin að langvarandi skortur á fjármagni til viðhalds hafi valdið þessari stöðu.

Á árinu 2024 er fjárþörfin til þessara verkefna á landsvísu að lágmarki 18 milljarðar að mati Vegagerðarinnar. Raunfjármagn er hins vegar um 12 milljarðar. Það er því ljóst að Vegagerðin þarf að forgangsraða.

Fjármagn fyrir árið 2024 til slitlaga á suðursvæði, þar með til höfuðborgarinnar, var 2.258 milljónir eða einungis um 19% af heildarfjármagni.

Vegagerðin kallar eftir meira fjármagni

...