Controlant hefur átt erfitt að undanförnu og gengið lækkað.
Controlant hefur átt erfitt að undanförnu og gengið lækkað. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Arion banki hefur verið með útboð á bréfum í Controlant síðustu daga. Samkvæmt heimildum ViðskiptaMoggans er um að ræða 25 milljónir USD sem hlutafé og 10 milljónir USD sem lán frá Arion.

Það sem vekur athygli er að í uppgjöri Sjóvár, sem var birt á dögunum, notaði félagið gengið 40 kr. á hlut til að verðmeta eignarhlutinn í Controlant í tengslum við uppgjörið. Er þetta niðurfærsla úr 90 kr. á hlut frá því í byrjun árs í bókum Sjóvár. Enn hærra gengi var á félaginu á síðasta ári.

Gengi bréfa í Controlant í útboðinu nú samkvæmt heimildum ViðskiptaMoggans er 30 kr. á hlut eða 25% lægra en í bókum Sjóvár.