Knattspyrnumaðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson hefur rift samningi sínum við Vestra. Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Eiður Aron, sem er 34 ára gamall, gekk til liðs við félagið fyrir nýliðið keppnistímabil. Eiður Aron skrifaði undir tveggja ára samning við Vestra síðasta vor, en hann lék 20 leiki með liðinu í Bestu deildinni í sumar þar sem liðið hafnaði í 10. sætinu og hélt sæti sínu í deildinni.
Matthías Guðmundsson verður nýr þjálfari kvennaliðs Vals í fótbolta. Tekur hann við liðinu af Pétri Péturssyni sem lét af störfum á sunnudag. RÚV greinir frá. Matthías þekkir afar vel til hjá Val, því hann lék lengi með liðinu og var síðan aðstoðarmaður Péturs hjá meistaraflokki kvenna. Hann lék með FH frá 2007 til 2009 og Haukum 2014 en var annars allan ferilinn hjá Hlíðarendafélaginu.
...