Guðmundur Vilhjálmsson fæddist á Búðum í Fáskrúðsfirði 19. febrúar 1933. Hann lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 18. október 2024.

Foreldrar hans voru Vilhjálmur Björnsson, f. 27. desember 1899, d. 2. júní 1967, og Helga Kristrún Guðmundsdóttir, f. 5. ágúst 1896, d. 2. nóvember 1979.

Systkini Guðmundar eru Haukur, f. 6. júlí 1925, d. 19. febrúar 1991; Sigurbjörg, f. 29. janúar 1928, d. 29. október 2022; Stefán, f. 20. febrúar 1931, d. 9. ágúst 1997; Gréta Auðbjörg, f. 12. ágúst 1937.

Guðmundur kvæntist Ernu Jóhannsdóttur frá Búðum á Fáskrúðsfirði, f. 3. september 1934. Foreldrar hennar voru Stefanía Sigríður Ólafsdóttir, f. 28. janúar 1894, d. 21. júlí 1971, og Jóhann Benedikt Jónsson, f. 25. september 1897, d. 27. apríl 1968.

...