Líklegt er að orkuverð á smásölumarkaði hækki nokkuð á næstu árum. Þetta segir Þórður Gunnarsson hagfræðingur í samtali við Morgunblaðið. „Ég tel afar ólíklegt að við munum sjá viðlíka hækkanir og urðu í Evrópu á árunum 2022 og 2023 en…
Orkumál Vinna við Hvammsvirkjun og Búrfellslund er hafin en bent hefur verið á að það taki mörg ár að koma auknu framboði inn á markaðinn.
Orkumál Vinna við Hvammsvirkjun og Búrfellslund er hafin en bent hefur verið á að það taki mörg ár að koma auknu framboði inn á markaðinn. — Morgunblaðið/Eggert

Magdalena Anna Torfadóttir

magdalena@mbl.is

Líklegt er að orkuverð á smásölumarkaði hækki nokkuð á næstu árum. Þetta segir Þórður Gunnarsson hagfræðingur í samtali við Morgunblaðið.

„Ég tel afar ólíklegt að við munum sjá viðlíka hækkanir og urðu í Evrópu á árunum 2022 og 2023 en orkuverð á smásölumarkaði hér á landi mun að öllum líkindum hækka,“ segir Þórður.

Greint var frá því í ViðskiptaMogganum í vikunni að meðalheildsöluverð fyrir raforku sem verður afhent á næsta ári væri töluvert hærra en fyrir þetta ár.

Sérfræðingur sem ViðskiptaMogginn ræddi við í tengslum við umfjöllun sem birtist á miðvikudag sagði að veruleg óvissa ríkti um hvort og þá á hvaða verði raforka fyrir næstu misseri yrði til sölu í vetur, eftir

...