Finnur Loftsson fæddist í Reykjavík 28. mars 1963. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 23. október 2024.
Foreldrar hans voru Sigrún Dúfa Helgadóttir, f. 25. október 1942, d. 16. apríl 2024, og Loftur Baldvinsson, f. 27. desember 1936, d. 5. júlí 1993. Systkini hans eru: Baldvin, f. 1960, Helgi, f. 1961, Ólöf, f. 1965, og Ragnhildur, f. 1978, faðir Ragnhildar er Gunnar Karlsson, f. 7. ágúst 1953.
Finnur kvæntist 13. apríl 1985 Hörpu Hólm Svavarsdóttur, f. 30. ágúst 1963. Dætur þeirra eru: 1) Helga, f. 18. júlí 1985, í sambúð með Gunnari Snæ Gunnarssyni, f. 6. mars 1983, börn: Brynjar, f. 23. nóvember 2009, Örvar, f. 23. nóvember 2009, og Ólöf Bryndís, f. 11. september 2016. 2) Brynja, f. 10. júní 1989, gift Jóhanni Inga Bjarnasyni, f. 11. apríl 1987, börn: Karen Helga, f. 5. október 2015, og Kolbrún Birna, f. 16. ágúst 2021.
...