Benedikt Guðmundsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfuknattleik, hefur tilkynnt 15 manna leikmannahóp sinn fyrir tvo leiki í F-riðli undankeppni EM 2025 í næsta mánuði. Ísland mætir Slóvakíu þann 7. nóvember og Rúmeníu 10. nóvember. Báðir leikirnir fara fram í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði. Í leikmannahópnum eru alls þrír nýliðar; Danielle Rodriguez, Anna Lára Vignisdóttir og Kolbrún María Ármannsdóttir.