Knattspyrnumaðurinn Alexander Helgi Sigurðarson er genginn til liðs við KR frá uppeldisfélagi sínu Breiðabliki. Kemur hann á frjálsri sölu og skrifar undir þriggja ára samning, út tímabilið 2027. Þar með endurnýjar Alexander kynnin við þjálfarann…
Knattspyrnumaðurinn Alexander Helgi Sigurðarson er genginn til liðs við KR frá uppeldisfélagi sínu Breiðabliki. Kemur hann á frjálsri sölu og skrifar undir þriggja ára samning, út tímabilið 2027. Þar með endurnýjar Alexander kynnin við þjálfarann Óskar Hrafn Þorvaldsson, en þeir unnu saman um árabil hjá Breiðabliki. Hann á að baki 79 leiki fyrir Breiðablik í efstu deild, þar sem hann skoraði fimm mörk. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu á dögunum.