30 ára Nikulás er Bolvíkingur en býr í Kópavogi. Hann er læknir frá Háskóla Íslands og er í sérnámi í heimilislækningum. Áhugamálin eru fótbolti, en hann spilaði fyrir Vestra, og golf.


Fjölskylda Maki Nikulásar er Kolbrún Ellý Björgvinsdóttir, f. 1996, bókari að mennt. Synir þeirra eru Emil Yngvi, f. 2018, Elías Rafn, f. 2021, og Elvar Orri, f. 2024. Foreldrar Nikulásar eru Jón Þorgeir Einarsson, f. 1962, endurskoðandi hjá Endurskoðun Vestfjarða, og Sigrún Sigurðardóttir, f. 1962, viðskiptafræðingur hjá Endurskoðun Vestfjarða og einn eigenda lýsisframleiðslunnar Dropa. Þau eru búsett í Bolungarvík.