Knattspyrnukonan Lára Kristín Pedersen gekk til liðs við Club Brugge í efstu deild Belgíu á dögunum og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. „Þessir fyrstu dagar hérna í Belgíu hafa verið mjög góðir,“ sagði Lára Kristín í samtali við Morgunblaðið. „Ég er mjög sátt við aðstöðuna og umgjörðina í kringum liðið,“ bætti hún við. » 35