Þórhallur Siggeirsson, þjálfari U19-ára landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið leikmannahóp sinn fyrir þrjá leiki í fyrstu umferð undankeppni EM 2025 sem verða leiknir í Moldóvu í næsta mánuði. Ísland er með Moldóvu, Írlandi og Aserbaísjan í riðli. Viktor Nói Viðarsson, sonur Arnars Þórs Viðarssonar fyrrverandi þjálfara A-landsliðs karla, er í hópnum í fyrsta skipti. Hópinn má sjá í heild sinni á mbl.is/sport/efstadeild.