Bridgesambandið Innan sambandsins eru starfrækt ýmis félög fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Miðvikudagsklúbburinn hittist á samnefndum kvöldum kl. 19:00. Klúbburinn leggur upp úr afslöppuðu og góðu andrúmslofti og tekur sérstaklega vel á móti nýliðum. Á heimasíðu sambandsins er að finna nánari upplýsingar um staðsetningu og starfandi félög.
Stefnumótaforrit Vantar þig félaga? Í dag fer ýmislegt fram í gegnum forrit, þ. á m. að finna sér vin eða vinkonu. Ýmsum stefnumótaforritum er einfaldlega hægt að hlaða niður í símann. Tinder er örugglega hvað þekktast þeirra. Á Tinder er hægt að skilgreina hvaða aldur viðkomandi vill sjá og forritið samstillir einstaklinga m.a. út frá áhugamálum.
Golf Íþrótt sem sameinar hreyfingu, útiveru og
...