Maður setur skuldunauti sínum úrslitakosti: endanlega skilmála. Sá hafði vonast eftir mildara samheiti. En nauðungarkostur er harður kostur eða kjör sem e-m er þröngvað til að sæta

Maður setur skuldunauti sínum úrslitakosti: endanlega skilmála. Sá hafði vonast eftir mildara samheiti. En nauðungarkostur er harður kostur eða kjör sem e-m er þröngvað til að sæta. Loks sættumst við á afarkosti sem eru mjög erfiðir skilmálar; mjög harðir kostir. En þrátt fyrir blæbrigðamuninn verður hann líklega að borga.