Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á tæplega 6 kíló af kristal-metamfetamíni í síðustu viku, að því er kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
Sex voru handteknir í viðamiklum aðgerðum lögreglu í þágu málsins og voru fimm þeirra í framhaldinu úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 6. nóvember. Einum þeirra hefur verið sleppt úr haldi.
Í tilkynningunni segir jafnframt að framkvæmdar hafi verið nokkrar húsleitir á höfuðborgarsvæðinu vegna málsins. Þá er um að ræða stærstu haldlagningu á kristal-metamfetamíni í einu máli hérlendis, en það fannst í bifreið sem var flutt sjóleiðis til landsins.
„Rannsókn málsins, sem snýr að stórfelldu fíkniefnabroti og skipulagðri brotastarfsemi, miðar vel. Við aðgerðirnar naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar tollsins, embættis héraðssaksóknara og
...