Goðsögn Daninn Morten Stig Christensen lést, 65 ára að aldri.
Goðsögn Daninn Morten Stig Christensen lést, 65 ára að aldri. — Ljósmynd/Danska Handknattleikssambandið

Danska handknattleiksgoðsögnin Morten Stig Christensen lést í gær, 65 ára að aldri. Hann var bráðkvaddur. Christensen var formaður danska handknattleikssambandsins þegar hann lést og áberandi á sjónvarpsskjáum Dana sem sérfræðingur um handknattleik.

Hann lék á sínum tíma 190 landsleiki fyrir Danmörku og skoraði í þeim 445 mörk frá 1976 til 1988. Fór hann á þrenna Ólympíuleika með danska liðinu.