Þingvellir og afmæli lýðveldisins Íslands er myndlistarkonunni Rósu Sigrúnu Jónsdóttur hugleikið á sýningunni Allt er eitt sem opnuð verður í Gallerí Fold í dag, laugardag, klukkan 14. Segir í tilkynningu að sýningin sé tileinkuð Þingvöllum og…

Þingvellir og afmæli lýðveldisins Íslands er myndlistarkonunni Rósu Sigrúnu Jónsdóttur hugleikið á sýningunni Allt er eitt sem opnuð verður í Gallerí Fold í dag, laugardag, klukkan 14. Segir í tilkynningu að sýningin sé tileinkuð Þingvöllum og vangaveltum um lýðveldið okkar sem sé 80 ára og á henni séu textílskúlptúrar, 98 teikningar, klippimyndir og myndband. Á opnuninni starti Rósa Sigrún einnig textílþátttökugjörningi sem verði í gangi út nóvember.