Lilja Ásgeirsdóttir fæddist 2. júlí 1973. Hún lést 20. október 2024. Útför hennar fór fram 30. október 2024.

Elsku Lilja systir sem með hreinskilni og ákveðni, en ekki síður ást og kærleika að vopni, var svo oft skjól mitt og skjöldur í lífsins ólgusjó. Það er djúp sorg að þurfa að kveðja Lilju mína sem lést 20. október eftir tveggja ára erfiða baráttu við krabbamein.

Við Lilja vorum nánar og lékum okkur mikið saman í æsku. Þegar við vorum þriggja og fimm ára þurftu mamma og pabbi að fara um tíma með Bjarneyju systur okkar til London í hjartaaðgerð. Það var vel hugsað um okkur á meðan en þetta var erfitt fyrir litlar mömmustelpur. Mér fannst ég þurfa að passa upp á Lilju mína og hún bað oft um að fá að koma upp í til mín á kvöldin því hún vildi ekki sofna ein. Kannski gerði þessi reynsla okkur nánari og styrkti strenginn sem ávallt var sterkur

...