Spenna Say Nothing nefnist nýr spennumyndaflokkur sem byggist á sönnum atburðum. Sagan hefst með hvarfi Jean McConville, ætlaðs meðlims í Írska lýðveldishernum (IRA), og síðan er farið með okkur inn í innsta hring IRA. Meginpersónur eru systurnar Dolours og Marian Price, sem handteknar eru og fangelsaðar fyrir að koma fyrir bílsprengju í Lundúnum árið 1973. Einnig hittum við Dolours fyrir á efri árum og rifjar hún upp söguna. Í helstu hlutverkum eru Lola Pettigrew, Hazel Doupe og Maxine Peake.