Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, sem hefur utanumhald um svokallaða Loftbrú, hefur kostnaður við verkefnið miðað við lok september numið um 525 milljónum á árinu. Þetta er kostnaður vegna flugferða með Icelandair, en Loftbrú veitir…
Flug Vél Icelandair hefur sig á loft.
Flug Vél Icelandair hefur sig á loft. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni, sem hefur utanumhald um svokallaða Loftbrú, hefur kostnaður við verkefnið miðað við lok september numið um 525 milljónum á árinu.

Þetta er kostnaður vegna flugferða með Icelandair, en Loftbrú veitir afsláttarkjör til þeirra sem eiga lögheimili á landsbyggðinni fjarri höfuðborgarsvæðinu og á eyjum án vegasambands.

Rúmlega 60 þúsund íbúar eru með réttindi til þessara kjara Loftbrúar en hver einstaklingur getur fengið lægri fargjöld fyrir allt að sex flugleggi til og frá Reykjavík á ári.