Hinn bandaríski Aldis Hodge lék m.a. í Straight Outta Compton.
Hinn bandaríski Aldis Hodge lék m.a. í Straight Outta Compton. — AFP/Eugene Gologursky

Spenna Aldis Hodge fer með hlutverk löggunnar ráðagóðu Alex Cross í nýjum myndaflokki sem byggist á skáldsögum James Pattersons. Þeir John Sampson, vinur hans og vinnufélagi (Isaiah Mustafa), eru á slóð raðmorðingja og mega að vonum engan tíma missa. Þrjár kvikmyndir hafa verið gerðar um Cross og lék Morgan Freeman aðalhlutverkið í tveimur þeirra. Cross kemur inn á Amazon Prime-veituna 14. nóvember.