Valur vann endurkomusigur á Gróttu, 22:21, á útivelli í úrvalsdeild karla í handbolta í gær. Með sigrinum fór Valur upp í 12 stig og annað sæti deildarinnar. Grótta er í áttunda sæti með níu stig. Mikið jafnræði var nánast allan fyrri hálfleikinn en …
Óblíðar Ísak Gústafsson hjá Val fær óblíðar móttökur frá varnarmönnum Gróttu í leik liðanna í úrvalsdeildinni í handbolta á Seltjarnarnesi í gær.
Óblíðar Ísak Gústafsson hjá Val fær óblíðar móttökur frá varnarmönnum Gróttu í leik liðanna í úrvalsdeildinni í handbolta á Seltjarnarnesi í gær. — Morgunblaðið/Eyþór

Valur vann endurkomusigur á Gróttu, 22:21, á útivelli í úrvalsdeild karla í handbolta í gær. Með sigrinum fór Valur upp í 12 stig og annað sæti deildarinnar. Grótta er í áttunda sæti með níu stig.

Mikið jafnræði var nánast allan fyrri hálfleikinn en Grótta náði góðum lokakafla og fór með fjögurra marka forskot í hálfleik, 12:8. Grótta var svo með fimm marka forskot, 17:12, þegar seinni hálfleikur var tæplega hálfnaður.

Valsmenn neituðu að gefast upp, jöfnuðu í 20:20, og knúðu fram sigur í blálokin. Færeyingurinn Bjarni Í Selvindi skoraði sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leikslok.

Úlfar Páll Monsi Þórðarson skoraði sex mörk fyrir Val og þeir Agnar Smári Jónsson, Bjarni í Selvindi og Viktor Sigurðsson gerðu þrjú mörk hver.

...