Ásgeir Þór Óskarsson fæddist 1. júlí 1935. Hann lést 14. október 2024. Útför hans fór fram1. nóvember 2024.

Við systkinin kveðjum elskulegan móðurbróður okkar, Ásgeir Þór Óskarsson.

Mikill og góður hluti af okkar lífi frá fyrstu tíð. Ljúfmenni með dásamlegan húmor. Okkur þótti vænt um þennan hlýja mann, eins og allri okkar fjölskyldu. Ásgeir Þór var góðmenni. Vandaður maður. En eins og góðmenna gjarnan er hátturinn var hann lágstemmdur þegar að honum sjálfum kom.

Ættaður af Reykjaætt, frá Ásgarði á Stokkseyri og Byggðarhorni í Flóa. Einkasonur afa og ömmu á Lokastíg 23. Náinn systrum sínum þremur. Hélt því fram á góðum dögum að hann hefði alið þær upp … og allir hlógu.

Hjá Ásgeiri frænda töluðu verkin. Og þau töluðu af miklum styrk en

...