Úlfarsárdalur Sigurjón Rúnarsson hefur gert samning við Framara.
Úlfarsárdalur Sigurjón Rúnarsson hefur gert samning við Framara. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnumaðurinn Sigurjón Rúnarsson er genginn til liðs við Fram frá Grindavík. Sigurjón er 24 ára gamall miðvörður sem hefur allan sinn feril leikið með Grindavík. Hann á að baki 175 leiki fyrir Grindavík í meistaraflokki og þar af 28 í efstu deild. Fram hafnaði í níunda sæti Bestu deildarinnar á nýliðinni leiktíð. Grindavík endaði í níunda sæti 1. deildarinnar. Sigurjón lék 20 leiki í deildinni á leiktíðinni og skoraði í þeim eitt mark.