80 ára Hjördís Björg Kristinsdóttir frá Djúpavogi er áttræð í dag, 2. nóvember. Foreldrar hennar voru Jóhann Kristinn Friðriksson útgerðarmaður og kona hans, Jónína Ágústa Gústafsdóttir
80 ára Hjördís Björg Kristinsdóttir frá Djúpavogi er áttræð í dag, 2. nóvember. Foreldrar hennar voru Jóhann Kristinn Friðriksson útgerðarmaður og kona hans, Jónína Ágústa Gústafsdóttir. Börn Hjördísar og Sigurðar Jóhanns Hendrikssonar heitins eru Rebekka María Sigurðardóttir og Jóhann Ágúst Sigurðarson. Barnabörnin eru sex talsins og langömmubörnin eru orðin sjö.
Hjördís tekur á móti gestum sínum að Ljósatröð 2, Frímúrahúsinu, í Hafnarfirði frá kl. 15.30 til 19.00.