Spédrama Bafta-verðlaunaserían Bad Sisters snýr aftur á Apple TV+ 13. nóvember. Síðast myrti ein systranna, Grace, bónda sinn, sem beitt hafði hana ofbeldi, og hinar hjálpuðu henni að hylma yfir glæpinn. Allt gekk samkvæmt áætlun. Nú gengur Grace að eiga nýjan mann og ný ævintýri bíða þeirra systra í þessari biksvörtu kómedíu. Lögreglan hnusar áfram af systrunum og nágrannar hafa sínar efasemdir um heilindi þeirra. Mun þeim takast að fela slóð sína enn og aftur? Með helstu hlutverk fara Anne-Marie Duff, Owen McDonnell, Eve Hewson, Sarah Green, Eva Birthistle og Sharon Horgan, sem einnig er höfundur handrits.
...