Bubbi Morthens mætti í morgunþáttinn Ísland vaknar á föstudag og fór um víðan völl með þeim Kristínu Sif og Bolla Má. Hann ræddi um nýju plötuna sína, Dansaðu, þar sem popp- og rokktónlist frá seinni hluta 8
Bubbi Morthens mætti í morgunþáttinn Ísland vaknar á föstudag og fór um víðan völl með þeim Kristínu Sif og Bolla Má.
Hann ræddi um nýju plötuna sína, Dansaðu, þar sem popp- og rokktónlist frá seinni hluta 8. áratugarins og diskótímabilsins blandast saman við einkennandi texta hans. Ný plata, ný lög og ljóð, en sami gamli Bubbi!
Í laginu Föst milli glerja syngur Elín Hall með honum, og hefur lagið vakið mikla athygli.
Hlustaðu á viðtalið við Bubba Morthens í heild sinni á K100.is.