Þórir Magni Áskelsson fæddist 19. ágúst 1973. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar 27. október 2024.

Hann var sonur Birnu Katrínar Þorsteinsdóttur, f. 28.11. 1955, d. 17.1. 2011, og Áskels Vilhjálmssonar.

Hann ólst upp sín fyrstu ár á Hólmavík og síðan fluttu þau mæðginin á höfuðborgarsvæðið. Þar bjuggu þau víða þar til þau eignuðust framtíðarheimili sitt í Tunguseli 9.

Hann eignaðist tvær dætur með Klöru Guðbjörnsdóttur, þær Írisi Annýju og Viktoríu Hrund. Síðar hóf hann sambúð með Berglindi Jónsdóttur, börnum og barnabörnum hennar.

Þórir var alla sína skólagöngu í Austurbæjarskóla og þar eignaðist hann góða vini fyrir lífstíð.

Þórir var verkamaður og stundaði ýmis störf bæði til sjávar og

...