Ný plata Kjartan Valdemarsson
Ný plata Kjartan Valdemarsson

Útgáfutónleikar nýrrar plötu píanóleikarans Kjartans Valdemarssonar og Stórsveitar Reykjavíkur fara fram í Silfurbergi Hörpu á morgun, sunnudaginn 3. nóvember, klukkan 20. Í tilkynningu kemur fram að platan geymi sjö nýleg verk eftir Kjartan sem öll séu skrifuð fyrir sveitina. „Tónlistin er tileinkuð náttúru Íslands. Verkin spegla hið fjölbreytta landslag Íslands, frá hinu stærsta og hrikalegasta til hins smæsta og fegursta.“