50 ára Halldóra ólst upp á Efra-Seli í Hrunamannahreppi og býr þar. Hún er leikskólakennari að mennt frá Háskólanum á Akureyri og starfar á leikskólanum Jötunheimum á Selfossi. Áhugamálin eru golf og að njóta samveru með fjölskyldu og barnabarni.
Fjölskylda Eiginmaður Halldóru er Unnsteinn Logi Eggertsson, f. 1973, verðandi framkvæmdastjóri Golfklúbbs Flúða. Börn Halldóru og Unnsteins eru Áslaug Guðný, f. 1997, Halldór Friðrik, f. 2000, og Gísli Gunnar, f. 2005. Barnabarn þeirra er Logi Steinn Kárason, f. 2021, sonur Áslaugar. Foreldrar Halldóru: Ásta Guðný Daníelsdóttir, frá Efra-Seli, f. 1948, búsett á Selfossi, og Halldór Elís Guðnason, f. 1945, d. 2022.