Tónleikar Grammy-verðlaunahafans, hinnar 25 ára gömlu Laufeyjar Línar Jónsdóttur, sem fram fóru í Hollywood Bowl í Los Angeles í byrjun ágústmánaðar, verða sýndir í Bíó Paradís dagana 6.-12. desember. Segir í tilkynningu að um sé að ræða stórkostlega kvöldstund með Laufeyju og vitnað er í ummæli sem birtust í Variety þar sem fram kom að Laufey væri fædd til að standa á sviðinu í Hollywood Bowl. Miðasala er hafin á vef Bíós Paradísar, bioparadis.is.