50 ára Gunnar Rúnar er Hafnfirðingur og býr á Völlunum. Hann er flugvirki hjá Icelandair og fyrrverandi varaformaður Flugvirkjafélags Íslands. Áhugamálin eru fjölskyldan, skíði, ferðalög og fjallahjólreiðar.


Fjölskylda Eiginkona Gunnars er Elísabet Hansdóttir, f. 1974, sjúkraliði á Landspítalanum. Börn þeirra eru Björgvin Axel, f. 1990, Daníel Jóhann, f. 1996, Inga Lára, f. 2004, og Óliver Ísak, f. 2008. Barnabarn þeirra er Eivör Lalía Daníelsdóttir, f. 2023, og annað barnabarn er á leiðinni í janúar. Foreldrar Gunnars eru Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 1946, fv. eigandi Prentsmiðju Hafnarfjarðar, og Jón Ólafsson húsasmíðameistari, f. 1945, búsett í Hafnarfirði.