Willum Þór Willumsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, reyndist hetja C-deildar liðs Birmingham City þegar hann skoraði sigurmarkið í 1:0-sigri á E-deildar liði Sutton United í 1. umferð ensku bikarkeppninnar í gær. Willum Þór lék allan leikinn en liðsfélagi hans Alfons Sampsted kom inn á sem varamaður á 79. mínútu.
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handknattleik, skoraði fimm mörk fyrir Veszprém þegar liðið vann auðveldan sigur, 40:25, á Gyöngyösi í ungversku efstu deildinni á laugardag. Aron Pálmarsson lék ekki með liðinu vegna meiðsla. Janus Daði Smárason skoraði sömuleiðis fimm mörk fyrir Pick Szeged í öruggum útisigri á PLER, 41:27, í deildinni á laugardag. Veszprém er á toppnum með 16 stig og Szeged er sæti neðar með jafnmörg stig en hefur leikið einum leik meira.
...