Eðvarð Guðmundsson fæddist í Reykjavík 28. september 1939. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 21. október 2024.
Hann var sonur hjónanna Guðmundar Helgasonar, f. 1888, d. 1965, og Guðrúnar Sigríðar Benediktsdóttur, f. 1896, d. 1984. Hann var yngstur í röð átta systkina. Systkini Eðvarðs eru: Helga, f. 1929, d. 2018, Gísli, f. 1930, Guðfinna, f. 1931, Guðríður, f. 1933, d. 1935, Kristján, f. 1934, d. 2018, Helgi, f. 1936, d. 2017. Guðríður, f. 1938.
Hann kvæntist Sigurbjörgu Sigurjónsdóttur, f. 1947, þann 31. desember 1975, dætur þeirra eru Sigrún Bjargey, f. 1971, og Sandra, f. 1980.
Sigrún Bjargey er í sambúð með Sigurbirni B. Sigurðssyni, f. 1961, og eiga þau synina Eðvarð Inga, f. 2001, og Guðfinn Ara, f. 2007. Sandra er gift Helga Tómasi Gunnarssyni, f. 1969, og eiga þau dæturnar Sigrúnu
...