Finnur Loftsson fæddist 28. mars 1963. Hann lést 23. október 2024.
Útför hans fór fram 1. nóvember 2024.
Finnur var þriðji í hópi okkar systkinanna fimm en mamma var tvítug þegar hún eignaðist hann. Hún þreyttist aldrei á að segja mér söguna af því þegar hún fékk hann í fangið nýfæddan og hversu hugfangin hún var af þessum dreng með svarta, síða hárið og dökku augun sem seinna urðu brún. Frásagnir mömmu af Finni lýstu barni sem var allt í senn; hljóðlátur og þægilegur, skemmtilegur og kátur, bráðlyndur og uppátækjasamur, og ekki síst fallegasta ungbarn sem hún hafði séð, að okkur systkinunum ólöstuðum.
Þegar mamma og pabbi hófu búskap var Finnur 13 ára. Pabbi segir mér að Finnur hafi verið mjög ljúfur unglingur, kátur og skapgóður og einstaklega handlaginn. Sem dæmi um handlagni hans byrjaði hann
...