Markaskorari Omar Sowe í leik með Leiknismönnum.
Markaskorari Omar Sowe í leik með Leiknismönnum. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Knattspyrnumaðurinn Omar Sowe er genginn til liðs við ÍBV frá Leikni Reykjavík. Omar, sem er frá Gambíu, skrifar undir tveggja ára samning í Vestmannaeyjum en hann lék síðustu tvö tímabil með Leiknismönnum. Omar skoraði 13 mörk í 1. deildinni í fyrra en hann skoraði samtals 25 mörk í 41 deildarleik fyrir Leikni. Hann kom fyrst til Íslands sumarið 2022 og lék þá með Breiðabliki er liðið varð Íslandsmeistari.