Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

„Þetta hefur verið mjög skemmtilegt verkefni en krefjandi á sama tíma,“ segir Vilhjálmur A. Einarsson, ferðaþjónustubóndi á Oddsparti í Þykkvabæ.

Talsverð uppbygging hefur verið á jörðinni síðasta árið og frekari framkvæmdir eru á teikniborðinu á næstu árum. Vilhjálmur og eiginkona hans, Dana Ýr Antonsdóttir, tóku við rekstri Hlöðueldhússins á jörðinni sumarið 2023 og reistu fljótlega tvö kúluhús sem ætluð voru

...