Guðmundur Vilhjálmsson fæddist 19. febrúar 1933. Hann lést 18. október 2024. Útför hans fór fram 1. nóvember 2024.
Með örfáum orðum langar okkur til að minnast afa Guðmundar eins og við kölluðum hann alltaf þrátt fyrir að hann væri í raun langafi strákanna minna. Það var alltaf mikil ró yfir afa og hann var ekki maður margra orða en var oft hnyttinn í svörum. Hann hafði alltaf gaman af að heyra hvernig gengi hjá okkur og þá sérstaklega hvernig Kristjáni gekk í skólanum og Elvari í boltanum. Hann vildi fá að fylgjast með okkur og það þótti okkur afar vænt um. Það var alltaf gott að kíkja á Þorragötuna þar sem amma og afi tóku ávallt vel á móti okkur með nýbökuðum snúðum eða öðru góðgæti. Það er stutt stórra högga á milli hjá okkur fjölskyldunni því að fyrir aðeins tæpum tveimur mánuðum gengum við í gegnum dimman dal þar sem eiginmaður minn og faðir strákanna okkar, og nafni afa
...