Daníel Hafsteinsson, miðjumaður bikarmeistara KA í knattspyrnu, hefur ákveðið að nýta sér riftunarákvæði í samningi sínum við uppeldisfélag sitt. Fótbolti.net greindi frá þessu í gær en að sögn miðilsins vill Daníel halda möguleikanum á að halda aftur út í atvinnumennsku opnum. Daníel, sem er 24 ára, lék með Helsingborg í Svíþjóð tímabilið 2019 en alls á hann að baki 138 leiki í efstu deild með KA og FH þar sem hann hefur skorað 18 mörk.