Kópavogur Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir er í U19-ára landsliðinu.
Kópavogur Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir er í U19-ára landsliðinu. — Ljósmynd/Breiðablik

Þórður Þórðarson, þjálfari íslenska U19-ára landsliðs kvenna í knattspyrnu, hefur kynnt leikmannahópinn fyrir undankeppni EM 2025 sem fram fer á Spáni í lok mánaðarins. Ísland er í riðli með Spáni, Belgíu og Norður-Írlandi og mætir öllum þremur liðunum frá 27. nóvember til 3. desember. Hópurinn kemur saman til æfinga 22. nóvember. Íslandsmeistarar Breiðabliks eiga þrjá fulltrúa í hópnum sem má sjá í heild sinni á mbl.is/sport.