Fyrsti vinningur í Víkingalottóinu gekk síðast út 15. maí síðastliðinn. Aldrei fyrr hefur svo langur tími liðið án þess að vinningurinn hafi gengið út. Dregið var í gærkvöldi eftir að Morgunblaðið fór í prentun og var fyrsti vinningur þá 25-faldur
Lottó Margir hafa keypt sér miða í Víkingalottóinu í Happahúsinu í Kringlunni síðustu vikur í von um þann stóra.
Lottó Margir hafa keypt sér miða í Víkingalottóinu í Happahúsinu í Kringlunni síðustu vikur í von um þann stóra. — Morgunblaðið/Karítas

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Fyrsti vinningur í Víkingalottóinu gekk síðast út 15. maí síðastliðinn. Aldrei fyrr hefur svo langur tími liðið án þess að vinningurinn hafi gengið út. Dregið var í gærkvöldi eftir að Morgunblaðið fór í prentun og var fyrsti vinningur þá 25-faldur. Vinningurinn hefur einu sinni náð að verða 24-faldur en það gerðist einmitt í byrjun þessa árs.

Norðmenn ekki lengur heppnir

„Þetta er mjög óvenjulegt. Norðmennirnir

...