Það er allt endurgjaldslaust í Framför utan félagsgjöld.
Það er allt endurgjaldslaust í Framför utan félagsgjöld. — Ljósmynd/Unsplash

Varðandi kostnað einstaklinga við að vera með í krabbameinsfélaginu Framför og/eða nýta þjónustu sem félagið býður upp á, þá er stefnan að allt sé endurgjaldslaust og það hefur tekist. Eingöngu eru greidd félagsgjöld einu sinni á ári.

Hver borgar þá brúsann? Í þessu fylgiblaði eru auglýsingar frá fyrirtækjum, félögum og stofnunum sem munu borga kostnað félagsins. Framför er líka með veftímaritið www.hellisbui.is og svo greiða margir hóflegt félagsgjald og við fáum ýmsa styrki.

Í raun væri erfitt að veita þjónustuna ef ekki væri fyrir þessi framlög og fyrir þau þökkum við kærlega.