Norski knattspyrnumaðurinn Benjamin Stokke mun yfirgefa herbúðir Íslandsmeistara Breiðabliks þegar samningur hans rennur út um áramótin. Stokke, sem er 34 ára gamall framherji, skoraði fjögur mörk í 23 leikjum með Blikum í Bestu deildinni á tímabilinu en hann gekk til liðs við Kópavogsliðið í mars.
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari karlaliðs HK í handknattleik, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann vegna mjög ódrengilegrar hegðunar eftir leik liðsins gegn Fram í úrvalsdeildinni í síðustu viku.
Tinna Bjarkar Jónsdóttir, leikjahæsta knattspyrnukona í sögu Gróttu, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Tinna er uppalin á Seltjarnarnesi og hefur leikið með liðinu allan sinn feril. Tinna, sem er 28 ára gömul, á að baki 133 leiki fyrir Gróttu þar sem hún hefur skorað 48 mörk. Hún var einn af
...