Fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish á Vestfjörðum hefur ákveðið að auka gagnsæi starfseminnar og birtir nú á vef sínum ítarlegar upplýsingar um hvert eldissvæði sem félagið er með í rekstri. Gerðar eru aðgengilegar til að mynda eftirlitsskýrslur Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar
Gagnsæi Arctic Fish hefur ákveðið að gera fjölbreytt gögn um starfsemi fiskeldisfyrirtækisins aðgengileg almenningi á heimasíðu félagsins.
Gagnsæi Arctic Fish hefur ákveðið að gera fjölbreytt gögn um starfsemi fiskeldisfyrirtækisins aðgengileg almenningi á heimasíðu félagsins. — Ljósmynd/Arctic Fish

Gunnlaugur Snær Ólafsson

gso@mbl.is

Fiskeldisfyrirtækið Arctic Fish á Vestfjörðum hefur ákveðið að auka gagnsæi starfseminnar og birtir nú á vef sínum ítarlegar upplýsingar um hvert eldissvæði sem félagið er með í rekstri. Gerðar eru aðgengilegar til að mynda eftirlitsskýrslur Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar.

Daníel Jakobsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Arctic Fish, segir fyrirtækið hafa gert meiri upplýsingar aðgengilegar almenningi en finna má til dæmis

...