Víkingur úr Reykjavík mætir Borac Banja Luka frá Bosníu í 3. umferð Sambandsdeildar karla í knattspyrnu á Kópavogsvelli í dag klukkan 14.30. Víkingar eru með 3 stig í 22. sæti deildarinnar eftir frábæran sigur gegn Cercle Brugge frá Belgíu, 3:1, á Kópavogsvelli í 2
Sambandsdeildin
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Víkingur úr Reykjavík mætir Borac Banja Luka frá Bosníu í 3. umferð Sambandsdeildar karla í knattspyrnu á Kópavogsvelli í dag klukkan 14.30.
Víkingar eru með 3 stig í 22. sæti deildarinnar eftir frábæran sigur gegn Cercle Brugge frá Belgíu, 3:1, á Kópavogsvelli í 2. umferð keppninnar. Víkingar töpuðu hins vegar fyrir Omonia Nikósía frá Kýpur í 1. umferðinni, 4:0, í Nikósíu á Kýpur.
Víkingar eiga því ennþá góða möguleika á því að komast áfram í umspil Sambandsdeildarinnar en liðiðin í 1.-8. sæti fara áfram í 16-liða úrslitin á meðan liðin í 9.-24. sæti fara í umspil um sæti í 16-liða úrslitunum. Borac var í styrkleikaflokki fimm þegar dregið var í deildarkeppnina í Mónakó í Frakklandi í
...