Það fæddist hringhenda þegar Ingólfur Ómar Ármannsson skrapp að Gróttu í hávaðaroki, kólgusjó og úrhellisrigningu: Ólgar sjárinn út við naust ægis gárast dætur. Hastur kári hækkar raust himinn tárum grætur

Pétur Blöndal

p.blondal@gmail.com

Það fæddist hringhenda þegar Ingólfur Ómar Ármannsson skrapp að Gróttu í hávaðaroki, kólgusjó og úrhellisrigningu:

Ólgar sjárinn út við naust

ægis gárast dætur.

Hastur kári hækkar raust

himinn tárum grætur.

Rjúpnaveiðitímabilið stendur stendur sem hæst og varla verður þverfótað fyrir rjúpnaveiðimönnum upp til heiða. Það er ærinn efniviður í brag hjá Pétri Stefánssyni:

Halda til fjalla

fræknir drengir.

Hlaðnir hólkar

hanga á öxlum.

Ganga þeir urðir

og grýttar hlíðar.

...