Guðný Siggeirsdóttir fæddist í Selfosshreppi 20. júlí 1960. Hún lést í faðmi ástvina á heimili sínu 27. október 2024.
Foreldrar hennar voru Siggeir Pálsson bóndi á Baugsstöðum, f. 6. júlí 1925, d. 12. desember 2001, og Una Kristín Georgsdóttir Dyrving húsmóðir, f. 17. nóvember 1930, d. 21. febrúar 2004.
Guðný var yngst fimm systkina, systkini hennar eru Páll, f. 4. september 1949, Svanborg, f. 18. september 1950, Elín, f. 6. október 1952, og Þórarinn, f. 15. maí 1954.
Guðný giftist Friðjóni Erni Guðmundssyni, f. 20. júlí 1955, 17. júlí árið 1982. Friðjón átti eitt barn úr fyrra sambandi, Kristján Örn, f. 7. júní 1977, sem var náinn Guðnýju alla tíð. Börn þeirra eru: 1) Linda, f. 17. febrúar 1983, dóttir hennar er Sól, f. 18. mars 2016. 2) Dögg, f. 3. maí 1988, gift Unnari Frey Ólafssyni, f.
...