Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson verður með á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golfi á Spáni sem hefst í dag. Guðmundur var ekki á meðal 25 efstu á öðru stigi úrtökumótanna og komst því ekki beint á lokaúrtökumótið. Hann var sjötti maður á biðlista á mótið en nú er ljóst að íslenski kylfingurinn fær tækifæri til að tryggja sér þátttökurétt á sterkustu mótaröð Evrópu. Leiknir eru sex hringir á lokamótinu.